Gæðakerfi Póstdreifingar er vottað samkvæmt ISO 9001:2008 staðlinum. En vottunin staðfestir að gæðakerfi fyrirtækisins uppfyllir kröfur staðalsins.
Tilgangurinn með að hafa virkt gæðastjórnunarkerfi er að tryggja að þjónusta Póstdreifingar sé í samræmi við viðskiptaskilmála, það rammar inn starfsemina og eflir stjórnun og rekstur. Þá eru allir verkferlar skýrir og allir starfsmenn Póstdreifing hafa aðgang að gæðabók fyrirtækisins. Þá er áhersla lögð á mikilvægi þess að vakta og greina reksturinn til að skili stanslausum umbótum í rekstrinum.
Gæðastjóri Póstdreifingar er Margrét Jósefsdóttir, margret@postdreifing.is
Afrit af gæðavottunarskirteinum má finna hér: /posthusid/upload/files/iso/gaedavottun_ph_-_afrit_af_skirteini_pm_adal.pdf og /posthusid/upload/files/iso/gaedavottun_ph_-_afrit_af_skirteini_pd.pdf
