bladberar2

 

Við póstburðarstörf þarf að gæta vel að líkamsbeitingu og hér á eftir fara góð ráð sem hafa ber í huga við blaðburð:

 
Reyndu að vinna öll verk sem næst þér.
Farðu nálægt blaðapakkanum þegar þú tekur hann upp af jörðinni.
Farðu nálægt lúgum, það er óþarfa álag að teygja sig í þær.
Reyndu að hafa blaðakerruna nálægt þér þegar henni er ýtt.
Notaðu líkamsþungann til að ýta kerrunni, það er óþarfi að beita of miklu handafli.
Dragðu kerruna sitt á hvað með hægri eða vinstri hendi.
Láttu fæturna vinna en hlífðu bakinu
Gættu að þér þar sem lúgur eru lágar, beygðu hné og mjaðmir frekar en bakið
Sama á við þegar þú nærð í blöðin í póstkerruna.
Þegar þú notar ekki kerru við póstburð notaðu þá frekar tvo poka en einn, það dreifir álaginu jafnar á bakið en þegar allt er í einum poka.
 
Öryggisnefnd:

 
Hjá Póstdreifingu er starfandi öryggisnefnd sem er ætlað að skipuleggja aðgerðir varðandi
aðbúnað, hollustuhætti og öryggi innan fyrirtækisins, annast fræðslu til starfsmanna og hafa eftirlit með að ráðstafanir varðandi aðbúnað, hollustuhætti og öryggi komi að tilætluðum notum. Blaðberar geta leitað til nefndarmanna með þau atriði sem þeir telja að bæta þurfi úr.
 
Öryggisnefnd Póstdreifingar er skipuð eftirfarandi starfsmönnum:
 
Dagný Ragnarsdóttir, dagnyr(hja)postdreifing.is
Margrét Jósefsdóttir, margret(hja)postdreifing.is
Örn I Jóhannesson, orn(hja)postdreifing.is