Launatímabil póst- og blaðbera er frá 25. hvers mánaðar til 24. næsta mánaðar og eru launin lögð inn á bankareikning starfsmanns fyrsta virka dag hvers mánaðar.
Bankaupplýsingar og skattkort þarf að berast til launadeildar Póstdreifingar fyrir 20. hvers mánaðar.
Við viljum ítreka að póst- og blaðberar bera ábyrgð á lánsbúnaði, þ.e. töskur og poka, sem hann fær afhentan og ber að skila honum strax við starfslok. Póstdreifing áskilur sér rétt til að halda eftir 16.000 krónum fyrir hverja kerru og 3.000 krónum fyrir hvern poka sem ekki er skilað eftir að blaðburði lýkur.
